|
Könnun
Hvort er betra ...?
Appelsína...
0 atkvæði
Epli...
0 atkvæði
Bjór...
1 atkvæði
Fjöldi atkvæða: 1
|
03.04.2009 14:31:23 / katrin
Já og það er ekkert rosalega gaman finnst mér, ég hætti að vinna á Hvanneyri 20 mars, svo að ég er bara að gera ekki neitt alla daga. En annars er bara komin apríl og það styttist óðum í sumarið góða og ég vona að það verði bara gott og skemmtilegt  . Langar alveg gífurlega til eyja um versló en það kemur bara í ljós  , hef ekki meira að segja og veit ekki hvað ég get sagt meira talvan er líka e-h leiðileg Katrín
»
01.03.2009 22:36:07 / katrin
Hæhæ,, ágæta fólk af mér er allt gott að frétta er bara búin að vera vinna og vinnan mín var að flytja í nýjan leikskóla sem er bara ótrúlega flottur  . Ég fór á frumsýningu Á Svið hún Magga mín var svo yndisleg að bjóða mér á hana og svo fórum við í partý eftir það og það var heldur betur gaman og mikið stuð  . Annars er ég bara ekki búin að gera mikið í febrúar mánuði annað en að hafa það gott stundum mjög gott   ,, sem er bara gaman  ég stunda barinn á Hvanneyri eins mikið og ég get og er það alltaf jafn gaman ég bara elska að fara á þennan stað og auðvitað að næla sér í sæta stráka  , Ég á viku eftir af vinnunni núna ég hætti 6. mars og þá veit ég ekki hvað ég geri næst, er búin að vera hugsa mig mikið um hvort ég eigi að fara út sem aupair þannig að það kemur líka vonandi í ljós á næstu mánuðum  ,, annars hef ég bara ekki mikið meira að segja vildi bara aðeins láta vita af mér hér  Katrín Hrönn
»
02.02.2009 17:21:15 / katrin
Og Janúar búinn og ég er mjög fegin þvi  , en það er allt gott að frétta af mér ég er bara er að vinna á fullu á Hvanneyri og svona og líkar það bara mjög vel  . Ég fór á mitt fyrsta þorrablót núna í lok Janúar og vá það var geðveikt gaman, ég ætla sko pottþétt aftur á svona blót  , maturinn var nú ekkert spennandi en ballið var mjög skemmtilegt  . Hef ekki meira að segja man ekki hvað ég gerði svona merkilegt í Janúar mánuði hehe, en ég hlakka bara til hvernig Febrúar mánuður leggur sig  Katrín....
»
12.01.2009 19:44:10 / katrin
Já og byrja strax á morgun  , fékk auðvitað vinnu á leikskóla á Hvanneyri þannig að ég er bara spennt að byrja, loksins hef ég þá e-h að gera  . Fór í bæinn um helgina og fór á djammið með Írisi og Sonju og það var ógeðslega gaman hitti þó nokkuð af fólki sem ég þekkti og bara gaman af því, en langaði bara að segja frá því að ég væri komin með vinnu nenni ekki að skrifa meira. KHL
»
01.01.2009 22:28:51 / katrin
Gleðilegt ár kæra fólk, vonandi höfðuð þið það gott yfir jól og áramót, ég gerði það allavega og það vel eigilega bara alltof gott, búin að sofa og borða og horfa á dvd til skiptis  en ég er bara mjög ánægð með allar gjafirnar sem ég fékk ég gæti bara ekki verið ánægðari  , jæja ég er bara enn atvinnulaus ég er heldur ekkert búin að vera leita neitt heh, en ætla að kanna vinnustaðina núna eftir áramót, svo byrjar skólinn 14 janúar og ég eigilega bara nenni ekki í skólann núna því miður veit ekki hvað kom fyrir en áhuginn bara datt allt í einu niður og ég get bara ekkert að því gert  en ég ætla nú samt að reyna að byrja í þessu og sjá svo bara hvað setur. Árið 2008 var bara gott ár að mínu mati djammaði eins og ég gat og stundum alltof mikið ég fór til eyja um versló með Helgu og það er svona það sem stendur mest upp úr og svo auðvitað bíladagar líka  , svo flutti ég heim frá Akureyri í lok ágúst og ég er hér enn í Borgarnesi, veit ekki hvernig nýja árið verður en það verður spennandi að sjá hvernig það verður En ætla ekki að hafa þetta lengra í bili Katrín....
»
24.12.2008 00:33:29 / katrin
GLEÐILEG JÓL ALLIR SAMAN OG HAFIÐ ÞAÐ GOTT UM JÓLIN
»
19.12.2008 13:27:16 / katrin
... Já það er bara gaman ég er búin að kaupa allar jólagjafir og búin að pakka þeim inn nema einni, og svo er ég búin að skrifa jólakortin líka  þannig að jólin mega bara koma núna. Annars er bara voða lítið að frétta er búin að taka smá pásu í djammi sem er bara fínt svosem, ég fæ kannski ekki atvinnuleysisbætur núna 2 janúar því að það er búið að vera smá vesen en ekkert sem ég gerði ég er búin að skila öllu mínu, en Leikskólinn fyrir norðan var nú dáldið lengi að skila inn því sem hann átti að skila en ég ætla bara að krossa fingur og vona að ég fái pening  En svo varðandi skólann áhuginn er að detta niður núna veit ekki afhverju er bara komin með svona pínu ógeð þó að ég sé ekki einu sinni byrjuð í skólanum, en vonandi breytist það eftir áramótin og á nýju ári, en ég hef bara ekkert meira að segja ég hlakka bara til jólanna og hafa það gott og borða góðan mat og þess háttar  KHL
»
05.12.2008 13:53:11 / katrin
Hæ jæja þá er helgin að koma og það er nú bara fínt, en ekki veit ég hvað ég geri, kannski skreppur maður í bæinn á djammið eða versla jólagjafir ég er ekki enn byrjuð á því en ég þarf svosem ekki að kaupa margar sem betur fer  , fór í klippingu og litun í gær og ég er bara mjög sátt með útkomuna á því  . Það eru 19 dagar í jólin þetta er svo fljótt að líða þau verða komin áður en maður veit af, Jeppe fer út á morgun þannig að ég verð heimalingur hjá Kæju minni á meðan  sem verður bara notalegt, svo fer Kæja út 27 des og ætlar að vera úti um áramótin og það verður skrítið að hafa hana ekki þá en maður verður bara að venjast því  . Ég er ekki enþá búin að finna jólakjólinn í ár er nú bara að spá í að hætta að leita nenni því ekki lengur annað hvort finnst mér kjóllinn sem ég finn alveg ógeðslega ljótur eða þá að hann er sjúklega dýr svo að ég er bara hætt að nenna leita ætla bara að vera í því sem ég var í fyrra það er svosem fínt  En hef ekki meira að segja ætla að halda áfram að hlusta á jólalög og reyna koma mér í gírinn að fara gera e-h hérna á þessu heimili  Katrín
»
01.12.2008 11:18:05 / katrin
Hæhæ jæja þá er jólamánuðurinn loksins kominn, og ég er bara í fríi að gera ekki neitt og hef það bara fínt  það eru 23 dagar í jólin vá þetta er svo fljótt að líða, en það sem er að frétta er nú bara eigilega ekki neitt eða voða lítið ég fór á djammið á Hvanneyri föstudaginn 21 nóvember og það var bara skemmtilegt alltaf gaman að djamma á Hvanneyri, og svo var síðasti dagurinn minn í Hyrnunni á föstudaginn 28 nóv, og ég bara ætla að vera í fríi í desember og hjálpa múttu að taka til og svona fyrir jólin, og svo fer ég í skólann eftir áramótin byrja 14 janúar og ég fer bara í eitt fag sem verður bara fínt enda hlakka ég bara pínu til að fara læra og hafa kannski e-h að gera þá á daginn hehe  . En ég hef held ég bara ekki meira að segja ætla bara svona að láta vita af mér hérna. Katrín
»
18.11.2008 20:26:26 / katrin
Hæhæ ja ég skemmti mér alveg konunglega um helgina get nú ekki sagt annað  en ég fór nú samt fyrst á barinn á fimmtudaginn og það var auðvitað bara gaman fyrir utan smá afbrýðisemi í sumum haha,, en svo kom helgin og ég fór upp í sumarbústað á föstudagskvöldið með Möggu og Ólöfu og það var nú aldeilis gaman fullt af flottum kroppum og bara vá þetta var geggjað  , við komum heim um nóttina man ekki alveg hvenar og svo var bara sofið út á laugardaginn missti reyndar af ríkinu en það er nú í lagi, svo um kvöldið að þá skelltum við okkur stöllur á ball og guð minn góður ég hef bara aldrei farið á jafn leiðilegt ball og ég ætla mér ekki á svona ball í bráð  , en þegar ballið var búið að þá fóru ég og Magga aftur upp í bústað og þá var sko helvíti gaman þá var maður komin aðeins í glas og svona gaman og það var spilað og spjallað og allt saman alla nóttina til svona 7 um morguninn þá ákváðum ég og Magga að halda heim á leið og Magga átti að fara vinna kl: 11: 30 á sunnudeginum en hún fékk nokkra tíma svefn hehe  ,, og ég svaf auðvitað bara eins og ég gat og það var nú vottur af þynnku um daginn því miður en þetta var ógeðslega skemmtileg helgi og það verður bara ekkert rætt meira um bústaðaferðina hér  . Uhh svo er bara þessi mánuður að verða búinn og þá kemur desember jólamánuðurinn skemmtilegi, og mikið hlakka ég til jólanna ég bara veit ekki hvað er að mér núna er bara að tapa mér í jólaskapi  en svo er eg að fara í skólann hérna í nesinu eftir áramót eða ég verð bara í einu fagi og það mun vera Íslenska og það verður bara að koma í ljós hvernig það verður allt saman hvort að ég á eftir að meika þetta eða ekki. En svo bara er stutt eftir af vinnu hjá mér síðasti vinnudagurinn minn er 28 nóvember og þá veit ég ekki hvað ég geri, bara taka því rólega fyrst og njóta þess að vera í fríi held ég bara  ,,, en veit ekki hvað ég get sagt meira jú ég þurfti að borga andskoti mikið fyrir bílinn minn þegar hann fór í viðgerð og ég varð auðvitað alveg brjáluð hvað þetta var mikið, bjóst sko engan veginn við því, en ég er búin að borga það núna svo ég er bara að reyna gleyma þessu hvað þetta kostaði mikið og kagginn minn er í góðu standi núna sem er bara gott mál  en hef ekki meira að segja í bili svo að ég segi þá bara bless Katrín Hrönn
»
09.11.2008 20:20:05 / katrin
Hæ jæja þá er helgin að verða búin því miður langar að vera bara eins lengi og ég get í fríi  ,, en jæja ég gerði nú ekki mikið um helgina og fyrir hana ég ætlaði að fara á barinn á Hvanneyri á fimmtudaginn á Nýdönsk en ég seldi miðann minn sama dag og ég sé hrikalega eftir því  svo á föstudaginn var ég bara að vinna og dagurinn var mjög svo lengi að líða ég hélt að hann ætlaði aldrei að verða búinn, svo um kvöldið þá kíktum við vinkonur út á rúntinn semsagt ég, Magga og Ólöf við ætluðum að kíkja á Vinakaffi en þar var auðvitað engin frekar en aðra daga, svo kom Þráinn með okkur á rúntinn og þessi bær var svo gjörsamlega dauður að við ákváðum bara að skella okkur til Reykjavíkur á djammið og við brunuðum þangað og vorum komin um 2 eða e-h svoleiðis, þá lá leið okkar á Hressó og mikið ógeðslega var gaman og ég nottla átti heima á barnum eins og vanalega  en annars var þetta bara djöfulli gaman dönsuðum af okkur rassinn og lappirnar bara held ég líka, og áður en við fórum aftur í Borgarnes stoppuðum við á Hlölla og fengum okkur að borða og úffff hvað þetta var gott ég var sko ekki lengi að gúffa þessu í mig hehe, en bara takk fyrir skemmtilegt kvöld Magga, Ólöf og Þráinn  . Laugardagurinn var nú ekkert svo þunnur eigilega bara ekki neitt sem betur fer og ég var bara heima að hafa það notalegt var ein heima í gær og í dag og meira að segja svaf ein heima hérna í fyrsta skiptið ótrúlegt en satt  og ég sem þori valla að vera ein heima þá gat ég þetta ógeðslega dugleg maður  , svo bara er ég búin að vera dúlla mér í dag setja í þvottavélina og svona brjóta saman þvottin og margt annað og horfa á dvd og bara hafa það gott  . Svo er bara vinna á morgun og guð hvað ég nenni því ekki langar að sofa út og dunda mér bara allan daginn, en því miður verð ég víst að vinna, en ég hef ekki meira að segja held ég bara þannig að ég segi þá bara bless í bili Katrín Hrönn
»
04.11.2008 18:05:51 / katrin
Hæhæ jæja þá er bara komin nóvember vá hvað tíminn líður hratt, jólin koma bráðum og verða búin bráðum líka hehe, en af mér er gott að frétta fór á barinn á fimmtudaginn og ég skemmti mér líka svona rosalega vel  eins og alltaf þegar maður fer þangað, svo um helgina þá man ég ekki mikið hvað ég gerði á föstudaginn en á laugardaginn þá bara svaf ég vel frameftir og var bara að dúlla mér frameftir degi voða notalegt svo um kvöldið var ball í Valfell og við vinkonur fórum þangað og það var alveg ágætt bara hefði alveg mátt vera meira af fólki og svona en við stöllur skemmtum okkur bara vel  . Sunnudagurinn fór bara í smá þynnku en ekki mikið sem betur fer það er orðið svo leiðilegt að vera alltaf þunn og hanga bara upp í rúmi og svona. En svo kíktum ég og Magga á Olís og fengum okkur að borða þar fínt að breyta stundum til og ekki alltaf að vera að borða í Hyrnunni hehe, Ólöf var að vinna á Olís og fengum við okkur allar að borða saman og ræddum málin síðan um kvöldið á ballinu og svona  og ef þið viljið sjá myndir þá bara verðið þið að kíkja á facebook síðuna mína þar eru nokkrar myndir frá ballinu  . Svo er ný vinnuvika byrjuð og allt í lagi með það við ætlum að skreyta Hyrnuna á morgun og setja jólaljós út í glugga og svona kózýheit  , svo förum ég og Kæja mín á barinn á fimmtudaginn Nýdönsk verður þar að spila og mikið hlakka ég til að fara á það og fá mér smá bjór kannski það má nú ekki sleppa því  en vá veit ekki hvað ég get sagt ykkur meira það er bara skítaveður hérna og hundleiðilegt þannig að ég segi þetta þá bara gott í bili Katrín
»
25.10.2008 12:10:19 / katrin
Já góðan daginn gott fólk það er aldeilis gott og fallegt veðrið í dag en samt pínu kalt held ég  en það er bara kominn snjór og mín ekki komin á vetrardekkin úps ein kærulaus bara  , en ég ætla að setja þau undir bara eftir helgina. En það sem er að frétta af mér er nú bara lítið held ég bara njóta þess að vera í helgarfríi eins og alltaf og bara hafa það huggulegt hérna ein heima  , ég fór ekki á barinn á fimmtudaginn ótrúlegt en satt fór hún Katrín Hrönn ekki á barinn en það er nú ástæða fyrir því líka ég var ekki komin á vetrardekk þannig að ég treysti mér ekki til að keyra og svona, en ég fer bara á næsta fimmtudag og þá verður sko fengið sér bjór og haft gaman  . Ég er komin í alveg ágætt jólaskap það er örugglega bara útaf snjónum en ég er farin að hlusta á jólalög mér til mikillar gleði ója  og ég get ekki beðið eftir jólunum að borða góðan mat og vera í faðmi fjölskyldunnar og opna pakka og svona gaman  . En hvað get ég sagt ykkur meira langar í bæinn og detta feitast í það og dansa af mér rassgatið  en það kemur að því að það gerist, hef ekki meira að segja ætla að fara koma mér í sturtu og fara úr náttfötunum og koma mér niðrí bæ að gera e-h sniðugt  Katrín kveður í jólaskapi
»
18.10.2008 19:35:59 / katrin
Já það er sko alveg satt það er gjörsamlega kalt úti  en hvað um það, það er helgi eins gott og það getur verið ég fór á barinn á fimmtudaginn eins og alla aðra fimmtudaga og það var alveg ágætt ekkert margir því að það voru margir að fara í próf á föstudaginn. Svo á föstudagskvöldið að þá fór ég bara á rúntinn með Möggu og Ólöfu og við rúntuðum meira að segja á Hvanneyri gá hvort að það hafi verið stemming þar en svo var ekki, svo fór Magga heim man ekki alveg hvenar og ég og Ólöf héldum áfram að rúnta og svo kom Þráinn með okkur og við rúntuðum alveg til að verða 4 og vorum á spjallinu og svona gaman, langt síðan ég hef rúntað svona hrikalega lengi  En í dag ( laugardag) þá bara svaf ég eins mikið og ég gat og langt fram eftir degi sem var bara gott svo að ég er ekki búin að gera neitt þannig séð í dag en ég er að fara til Kæju og Jeppe á eftir að borða pizzu umm  og borða nammi og horfa á dvd og þá verður sko aldeilis sukkað á namminu hehe, uhh svo á mánudaginn þá er leikur hérna heima Snæfell-Skallagrímur eru að fara keppa og ég ætla að sjálfsögðu að mæta á leikinn og stiðja mína menn semsagt Skallagrím  ,,, hef ekki meira að segja bara ætla að njóta þess að vera í helgarfríi og bara fara hafa það kózý  Katrín H
»
11.10.2008 19:44:05 / katrin
Hæhæ jæja þá er enn ein helgin komin og það er bara notalegt  .. annars er bara lítið að frétta var bara að vinna og svona og svo á Miðvikudaginn þá fórum ég, Kæja og Helga til Kristínar og Tryggva kíktum til þeirra í kökur mmm takk fyrir mig  ,, svo kíkti ég á barinn auðvitað á Fimmtudaginn hvað annað hehe,, ég fór með Möggu, Ólöfu og Jón Erni og það var bara gaman samt ekkert rosalega margir en samt alveg e-h fólk. Svo á Föstudaginn mætti ég ógeðslega þreytt í vinnuna ekki samt af því að ég var þunn eða neitt því að ég var að keyra á Fimmtudeginum loksins keyrði ég og fékk mér engan bjór það er nú e-h nýtt  , og svo í gærkvöldi þá bara horfði ég á tvið og hafði það bara kózý hérna ein inni í herbergi og fór að sofa bara snemma. Svo er ég bara búin að gera mest lítið í dag fór niðrí bakarí að borða með Kæju minni og Jeppe og fengum okkur að borða, svo um 3 leytið fóru ég og Kæja upp á Hvanneyri því að þau voru að fara þrífa nýja Leikskólann þar og það var nú ekkert rosalega gaman að hanga þar þannig að ég fór bara og kíkti í heimsókn til Helgu  Svo veit ég bara ekki hvað ég geri á morgun bara liggja í leti, svo að helgin hjá mér er bara búin að fara eigilega í ekki neitt þannig að ég skrifa bara seinna. Katrín Hrönn
»
Síður: 1 2 3 ... 14
|
|